Rakakrem SPF 15 eðlileg til þurr húð Print Senda

Rakakrem SPF 15 eðlileg til þurr húð

Veldu um að fá þér mjúkt og gjöfult dagkrem fyrir eðlilega til þurra húð með avókadó, aprikósum og sólblómaolíu eða léttara og fitulaust rakakrem fyrir eðlilega til feita húð með dúnurtarkrafti.

NouriFusion™ rakakremið fyrir venjulega til þurra húð gefur andlitinu nauðsynlegan raka og inniheldur SPF 15 UVA/UVB sólar- og veðrarvörn til að verja húðina gegn skaðlegum umhverfisáhrifum.

Þetta létta dagkrem gefur næringu, raka og verndar húðina án þess að gera hana gljáandi.

Sjá nánari lýsingu.

Undirstaða við umhirðu húðarinnar:

1. HREINSIMJÓLK
Hreinsaðu andlitið á morgnana og kvöldin til að losna við óhreinindi og svipta hulunni af tandurhreinni húð.

Nuddaðu hreinsimjólkinni varlega inn í húðina með hringhreyfingum upp á við. Skolaðu hana vel af með heitu vatni.

2. ANDLITSVATN
Strax eftir hreinsun skaltu væta baðmullarskífu með andlitsvatni og strjúka létt yfir enni, kinnar og háls, og enda í skorunum umhverfis nef og höku, til að fjarlægja óhreinindi sem eftir sitja og fríska húðina.

 3. RAKAKREM
Innsiglaðu rakann í húðinni með því að velja rétta rakakremið fyrir þína húðgerð.

Dreifðu kremdeplum yfir allt andlitið og nuddaðu þeim varlega inn í húðina á andliti og hálsi með fingurgómunum, með því að strjúka upp á við.

 

 




eXTReMe Tracker