Arnhildur Guðmundsdóttir Print Senda
Ég greindist með vefjagigt og 26 ára eftir mikil veikindi og rannsóknir. Sjúkdómurinn lýsir sér m.a. í orkuleysi, þreytu og slæmum verkjum í líkamanum.   Ég neitaði að horfast í augu við breytingu á lífi mínu en fjórum árum síðar urðu endaskipti í lífi mínu þegar ég einn morguninn var búin með alla mína orku.  Ég átti ekki annarra kosta völ en að einbeita mér aðeins að heilsunni;  Ég var orðin sjúklingur í orðsins fyllstu merkingu.

8 mánuðum síðar, eftir að hafa náð eins miklum bata og virtist vera hægt samkvæmt læknavísindunum í dag, byrjaði ég á heilsu- og næringar- prógrammi Herbalife. Ég vissi lítið um vöruna nema að hún var notuð sem hjálpartæki við megrun. Ég hvorki trúði né hafði nokkuð hugleitt lækningamátt jurta en hafði engu að tapa. Ég varð að létta mig því ég hafði fitnað um 18 kíló á 2 árum vegna lyfjatilrauna og hreyfingarleysis.

Ég fór að finna árangur strax fyrstu dagana en þorði ekki að trúa fyrr en tvær vikur voru liðnar. Breytingarnar voru frábærar. Ég gat vaknað á morgnana og farið fram úr rúminu. Ég hafði meiri orku og einbeitingu yfir daginn, varð öll hressari, hafði minni gigtarverki og varð betri í maganum. Í framhaldinu varð ég jákvæðari og fannst ég vera með betri stjórn á lífi mínu.

Ég missti 8 kíló á fyrstu fjórum mánuðunum og í dag, 13 mánuðum síðar, er ég 17 kílóum léttari, hef lokið laganámi, gift mig og vinn hálfan daginn.

Það besta sem jurtalífsvörurnar hafa gert fyrir mig er að hjálpa mér að ná heilsunni að því marki sem ég get sætt mig við. Við erum alin upp við það að trúa blint á læknavísindin en því miður hafa þau ekki svarið við öllum spurningum okkar. Mér fannst það í byrjun vera kraftaverk að ég gæti náð svona góðri heilsu með hjálp Herbalife. En oft er lífið svo ótrúlega einfalt. Það sem vörurnar gera er einfaldlega að gefa líkamanum rétta næringu í réttu magni og afleiðingin er eðlilega sú að honum líður betur.

Ef þú veist um einhvern sem er með vefjagigt og er tilbúinn að prófa eitthvað nýtt, vinsamlega hafðu samband við mig
   

3. mars 2001
Arnhildur Guðmundsdóttir
lögfræðingur
 




eXTReMe Tracker